Wednesday, January 27, 2010

Karl Lagerfeld sýnir á sér nýjar hliðar! :)



Vor-og sumrlína Karl Lagerfeld fyrir Chanel kom á óvart. Haute Couture línan var sýnd með viðhöfn í París í vikunni. Hönnuðurinn er þekktur fyrir að hafa svarta litinn í aðalhlutverki en nú bar við annan tón. Það var varla svartur depill í línunni. Litapallettan var þó ekki bara frábrugðin heldur skörtuðu sniðin öðru tvisti en venjulega.

Coco Chanel fann upp „litla svarta kjólinn“ og hefur hann verið í aðalhlutverki síðustu 100 árin eða svo. Hverri konu hefur verið tjáð að hún verði að eiga einn slíkan því annars gæti allt farið í óefni. Nú þarf kvenpeningurinn að endurhugsa þetta því ekki sást einn „lítill svartur kjóll“ á sýningunni. Litapallettan var löðrandi í lúxus þar sem platínuliturinn kom sterkur inn.

Skótauið var allt meira og minna platínulitað og á fatnaðnum mátti sjá platínulitaðar leðurbryddingar. Inni á milli voru létt og flöffí efni áberandi. Hin hefðbundna Chanel-dragt var poppuð upp með því að síkka jakkann örlítið og gera pilsið meira a-sniðið.


Fötin í vor-og sumarlínunni minna á brjóstsykur enda er litapallettan öll í sykursætum og daufum litum. Það er jafnvel hægt að tala um nettan kandíflosfíling. Fyrirsæturnar voru dúkkulegar og hárgreiðslurnar allar svipaðar. Þungir toppar eru það sem koma skal og hárið á að vera tekið upp á íburðarmikinn hátt.

Takið sérstaklega eftir sokkabuxunum. Perluáferðin á þeim minnir töluvert á sokkabuxnatískuna sem tröllreið öllu í kringum 1995 eða þegar sokkabuxurnar voru húðlitaðar og háglansandi. Hverjum hefði dottið í hug að það kæmist aftur í tísku?

No comments:

Post a Comment