Wednesday, January 27, 2010

Karl Lagerfeld sýnir á sér nýjar hliðar! :)



Vor-og sumrlína Karl Lagerfeld fyrir Chanel kom á óvart. Haute Couture línan var sýnd með viðhöfn í París í vikunni. Hönnuðurinn er þekktur fyrir að hafa svarta litinn í aðalhlutverki en nú bar við annan tón. Það var varla svartur depill í línunni. Litapallettan var þó ekki bara frábrugðin heldur skörtuðu sniðin öðru tvisti en venjulega.

Coco Chanel fann upp „litla svarta kjólinn“ og hefur hann verið í aðalhlutverki síðustu 100 árin eða svo. Hverri konu hefur verið tjáð að hún verði að eiga einn slíkan því annars gæti allt farið í óefni. Nú þarf kvenpeningurinn að endurhugsa þetta því ekki sást einn „lítill svartur kjóll“ á sýningunni. Litapallettan var löðrandi í lúxus þar sem platínuliturinn kom sterkur inn.

Skótauið var allt meira og minna platínulitað og á fatnaðnum mátti sjá platínulitaðar leðurbryddingar. Inni á milli voru létt og flöffí efni áberandi. Hin hefðbundna Chanel-dragt var poppuð upp með því að síkka jakkann örlítið og gera pilsið meira a-sniðið.


Fötin í vor-og sumarlínunni minna á brjóstsykur enda er litapallettan öll í sykursætum og daufum litum. Það er jafnvel hægt að tala um nettan kandíflosfíling. Fyrirsæturnar voru dúkkulegar og hárgreiðslurnar allar svipaðar. Þungir toppar eru það sem koma skal og hárið á að vera tekið upp á íburðarmikinn hátt.

Takið sérstaklega eftir sokkabuxunum. Perluáferðin á þeim minnir töluvert á sokkabuxnatískuna sem tröllreið öllu í kringum 1995 eða þegar sokkabuxurnar voru húðlitaðar og háglansandi. Hverjum hefði dottið í hug að það kæmist aftur í tísku?

Tuesday, January 26, 2010

Tískan í vor! :)

Matthew Williamson



Ég var að fara yfir vorlínurnar hjá helstu tíksuhúsum í leit af því nýjasta og ferskasta. Reyndar var mikið af endurtekningum í beigelitum efnum og beinum sniðum…

Mér tókst þó að finna nokkra ofurferska og flotta gullmola frá Balmain, Matthew Williamson og Proenza Shouler en þessi tískuhús hafa verið að sækja í sig veðrið undanfarið. Og þú ferð varla inn í þá high-street verslun sem ekki sækja innblástur til þessarra snillinga, Zara, Top Shop, All Saints og Oasis eiga örugglega eftir að láta þessa fersku vinda blása um sínar verslanir í vor og ég get ekki sagt annað en að mig hlakki til.

Áfram verður áhersla lögð á axlirnar, oddhvassar axlir, axlir með hermannadúskum og semalíusteinum og er “axlagóður” jakki algjört must have i vor, rétt eins og marglitir “tye dye” eða dýramynstraðir kjólar og bolir, þröngar leðurbuxur eða snjóþvegnar og sjúskaðar gallabuxur.

Í vor er leyfilegt að vera sjúskuð, hárið á að vera náttúrulegt, ógreitt og pínulítið úfið eða liðað og förðunin í lágmarki.

Takið eftir skónum hjá Matthew Williamson, einstaklega krúttlega töff með slaufum , þó maður þurfi sennilega á námskeið að halda til að læra ganga á þeim eins og svo mörgum skóm sem eru í tísku um þessar mundir með himinháum hælum..



Segið ykkar skoðanir ;)

Íslenskt tískublog! :)





Halló!

Ég er 15 ára stelpa sem hef mikinn áhuga á tísku.
Ég ákvað að búa til eitt fashion og shopping blog á Íslensku.
Ég elska að lesa þau svo ég ætla að blogga hérna mína skoðun
á tísku og þýða yfir á Íslensku skemmtileg blog sem ég finn á
netinu :)

Endilega lesið og segið ykkar skoðanir! ;)